January 25th, 2012
Engar athugasemdir
Innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fer fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla.
Innritað verður frá 30. janúar til 29. febrúar 2012. Tímamörk almennrar innritunar gilda þó fyrir þær umsóknir sem berast seinna.
Umsækjendur sækja veflykil á menntagatt.is. Þegar umsækjendur hafa fengið veflykil opnast þeim aðgangur að innrituninni. Nánari leiðbeiningar um rafræna innritun er að finna í bréfi til forráðamanna nemenda sem afhent er í grunnskólum landsins og einnig má finna á slóðinni menntagatt.is/kynningarefni.
Nánari upplýsingar um rafræna innritun á starfsbrautir í framhaldsskólum veitir Ragnheiður Bóasdóttir í mennta- og menningarmálaráðuneyti. Fyrirspurnir má senda á netfangið ragnheidur.boasdottir@mrn.is
January 3rd, 2012
Engar athugasemdir
Töfluafhending fyrir nemendur á starfsbraut verður föstudaginn 6. janúar kl. 15:00 í stofu 17.
December 16th, 2011
Engar athugasemdir

Okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Þökkum samvinnuna á árinu sem er að líða.
Að loknu jólaleyfi hefst kennsla mánudaginn 9. janúar.
December 8th, 2011
Engar athugasemdir

Í dag stóðu útskriftarnemendur fyrir firmakeppni í boccia. Keppnin var liður í fjáröflun fyrir Parísarferðina sem fyrirhuguð er í vor. 17 lið voru skráð til keppni og drógu nemendur um hvaða fyrirtæki þeir kepptu fyrir. Jóhann íþróttakennari var mótstjóri en keppt var á þremur völlum.
November 25th, 2011
Engar athugasemdir

Í vetur hafa nemendur á þriðja og fjórða ári verið í starfsnámi einu sinni í viku. Starfsnámsstaðirnir eru margir m.a Nóatún, Bónus, Þín Verslun og Sorphirða Kópavogs.